
Viðburðir
| << | júlí 2010 | >> | ||||
| m | þ | m | f | f | l | s |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
Næstu viðburðir

Póstlisti

kefjet.is

Skoðaðu Kefjet video
kefjet@simnet.is
29.07.2010
Kefjet er ennþá lifandi ef einhver var að spá í því en Skaginn var síðasta sem við gerðum og eigum við fullt af efni eftir þá ferð sem er í vinnslu,en ferðin heppnaðist vel í alla staði mikið stuð og gaman og létu fleiri sjá sig en síðustu ár sem var mjög gaman ,og í brautarkeppninni voru úrslitin óvænt þar sem maður vann sem ekki var í Kefjet og er greinilega samkeppni á leiðinni fyrir okkur en Auðunn kom og tók Sigga G sem endaði í öðru sæti og Gumma Hil sem endaði í 3ja sæti ,Auðunn kom okkur mjög á óvart og keyrði án mistaka og sigraði örugglega við tókum þetta allt upp og verður þetta sett inn á síðuna eins fljótt og hægt verður.Nú um helgina átti að fara með græjurnar til eyja en það gengur ekki upp í þetta skiptið en við er staðráðnir í að fara til eyja með græjurnar og er sú ferð í skipulagningu hvort hún verði þetta sumar er ekki alveg á hreinu.Svo gæti ein helgarferð verið í uppsiglingu þar sem farið verður að einhverju vatni og gist meira um það síðar.Síðan verður ljóasanótt í byrjun september þar sem allt er að gerast við verðum með eitthvað í gangi þá og vonum við að allir áhugamenn um jetski komi og sjái höfuðstöðvar Kefjet.
Kv.Kefjet
20.06.2010

Þá fer að koma að Írskum Dögum og Kefjet lætur sig ekki vanta ,við mætum 1júlí og setjum upp tjaldbúðir ,Kefjet verður með sama svæði og alltaf (merkt blátt) og allir sem eru með jetski meiga tjalda hjá okkur og viljum við endilega sjá sem flesta,á föstudeginum ætlum við rúnt um svæðið síðast var farið í Hvammsvík og skelltum okkur í pottinn þar síðan um kvöldið bærinn skoðaður,á laugardeginum verður síðan brautarkeppni ef næg þáttaka verður og viljum við sjá fleiri skíði en undanfarið þar sem þetta er mikil skemmtun og þeir sem vilja vera með geta haft samband á staðnum eða senda okkur línu á kefjet@simnet.is í brautarkeppni er hjálmur skilyrði og fer hún fram við Langasand ,svo um kvöldið verður margumtalað lopapeysuball

tjaldsvæði merkt með bláu brautarstæði
KV.Kefjet
07.05.2010
Jæja þá er Kefjet að fara á fulla ferð og eins og öll sumur þá viljum við fá alla sem eiga skíði með okkur í sumar ,við ætlum að fara í einhverjar ferðir stuttar og langar , í þær eru allir velkomnir skiptir ekki máli hvernig sleða þú ert með bara hafa gaman af .Við setjum allt sem er búið að ákveða í viðburði og þar geta menn fylgst með okkur og sent okkur línu ef svo ber undir í kefjet@simnet.is
04.11.2009
Nýjar Myndir
Vorum að setja inn nýjar myndir frá síðustu ferð sumarsins ,við kíktum á Skorradalsvatn um miðjan ágúst með húsbílana og skíðin og smá guðsveigar og lokuðum þessu ári formlega við hefðum viljað sjá fleiri með okkur en við reynum að bæta úr því á næsta ári

Kv.Kefjet
03.11.2009
Fréttir af World Finals
Þá er World Finals búið og úrslitin voru ekki eftir bókinni eins og menn voru búnir að spá en Sam Harvey frá Ástraliu vann í ár á SeaDoo GTI þess má geta að þetta er í fyrsta skipti sem SeaDoo vinnur titilinn en Harvey hefur alltaf verið ofarlega síðustu ár en yfirleitt ekki komist í mark vegna bilanna ,Harvey keyrði annað sæti í moto 1 sem Warner (6) vann nokkuð auðvelt eftir að Maccluggage (3) lenti í bilunum og kláraði moto 1 í neðarlega ásamt Farthing(12) sem sleit supercharger reim í bæði moto 1 og 2 ,moto 2 var mjög spennandi þar sem MacCluggage,Warner ,Harvey ,Farthing voru fremstir og Warner áberandi fljótastur og var kominn með mikið forskot eftir 4 hringi svo á 8 hring gefur mótorinn sig og Harvey erfir 1 sæti og tekur titilinn eins og fyrr segir.
Nicolas Rius sem allir voru að bíða eftir með sinn Yamaha SHO hætti við keppni þar sem honum fannst brautin of hættuleg ,hann hefur kannski eitthvað til síns máls þar sem einn lét lífið í amateur keppninni eftir árekstur framan á annað skíði.
hér eru nokkrir linkar þar sem hægt er að sjá myndir og video af World Finals
http://www.youtube.com/watch?v=qwecl3ciReU , http://s758.photobucket.com/albums/xx222/havasuphoto/World%20Finals-Sunday/
Kv.Kefjet
08.10.2009
Þá er komið að World Finals en um næstu helgi verður Pro keppnin það verður örugglega eitthvað rugl í gangi með græjurnar í ár Yamaha FZR verður sennilega með 4-500 hestöfl og Kawasaki munu sennilega vera sterkir eins og alltaf , allir aðal gaurarnir verða á staðnum og við ætlum að fylgjast með þessu og setjum inn ef einhver video koma en hérna er posterinn fyrir okkur sem ætlum ekki að fara

Kv. Kefjet
19.09.2009
Nú þegar september fer að klárast og veturinn kemur og notkunin fer að minnka þá viljum við minna ykkur sem geyma skíðin í allan vetur að græja skíðin fyrir veturinn þannig að þau séu ekki ónýt næsta sumar það sem Kefjet ráðleggur er að þrífa skíðið vel utan sem í vélarrúmi,þurrkið skíðið vel og úðið WD-40 yfir vélina alla og úða vel yfir þá hluti sem hreyfast s.s throttlebody ,bakkbarkaunit og stýrisunitið og setja olíu inná sýlendrana c.a 2 tappa inná hvern (tvígengis vélar fá tvígengisolíu og fjórgengis fá smurolíu ) .Við munum sennilega fara rúnta í vetur og þið getið fylgst með okkur hér eða og á Facebook við reynum að setja inn þegar eitthvað er að fara gerast annars fara að koma myndir og vídeó frá Skorradalsferð sem við fórum í ágúst
Kv.Kefjet
27.07.2009
Kefjet fór með vinnuskóla Reykjanesbæjar sem voru í óvissuferð í buslugang á laugardaginn , við tókum allar blöðrur og banana sem voru til í húsinu og settum á flot og leyfðum liðinu að fá útrás hvort sem það var ferð á banana,manta ray eða bara stökkva fram af Berginu en held að það hafi allir fengið útrás og var og heppnaðist dagurinn mjög vel og var veðrið mjög gott .Við erum búnir að setja inn eitt vídeó og nokkrar myndir sem við náðum
Kv.Kefjet
22.07.2009
Vorum að setja inn smá video klippu af skaganum meira á leiðinni
Kv.Kefjet
14.07.2009
búið að setja inn myndir af Írskum Dögum meira áleiðinni
kv.Kefjet
06.07.2009
Þá eru Írskir Dagar búnir og fullt af efni sem við náðum erum að safna saman video og ljósmyndum fylgist með
Kv.Kefjet
21.06.2009
Kefjet er að fara á Írska Daga á Akranesi í sjöunda skiptið dagana 3-5 júlí einsog alltaf þá setjum við okkar brag á þessa hátið með því að koma með nýjustu tækin og tólin á staðinn og nú er enginn breyting á,við verðum á okkar venjulega stæði við Langasand með okkar húsbíla og tjöld þar sem öllum sæþotueigendum er frjálst að koma með skíðið og tjaldið og gista með okkur . Við ætlum að fara góðan rúnt á föstudeginum eitthvað um svæðið þar sem öllum er velkomið að koma með okkur og vonum við að sjá sem flesta,og svo á laugardeginum verðum við með okkar árlegu brautarkeppni þar sem allir eru velkomnir sem var með skemmtilegra móti í fyrra og viljum við fá alla með okkur, reynsla er ekki nauðsynleg þar sem skemmtunin er í fyrirrúmi þetta er eitthvað sem allir verða að prufa ,ef fjöldi leyfir þá reynum við að vera með tví og fjórgengisflokka.Við vonumst til að sjá sem allra flesta með okkur í þessa ferð þetta er alltaf ein af skemmtilegri ferðunum sem er mikið lagt í af okkar hálfu.Hægt er að sjá alla dagskrá fyrir Írska á www.irskirdagar.is ,svo ef menn vilja fá upplýsingar um okkur eða það sem við ætlum að gera og þeir sem vilja taka þátt með okkur þá er hægt að senda okkur mail á kefjet@simnet.is eða hægt er að nota spjallið vonum til að sjá sem flesta með okkur
KV.Kefjet
23.03.2009
Það er aldeilis hvað við erum búnir að fá gott veður sem af er að 2009 ,við skelltum okkur út í dag í rennirenni blíðu við vorum í rúma 2 tíma bæði í hvalaskoðun og tjúnnprófun og mesti hraði dagsins var 71 míla (gps) hjá Ása sem er að breyta RXT-X sem á að detta í 74+- svo rákust við á nokkra hvali og höfrunga frekar nálægt landi einsog sést á mynd dagsins þar sem Jón Viðar er svona 5-6 metra frá dýrinu og segja fróðir að þetta hefði verið hnúfubakur ,þetta ár lofar nokkuð góðu og viljum við hvetja enn meira af mönnum að senda okkur línu í e-mail eða bara skrá sig.við setjum inn nokkrar myndir úr ferðinni og kannski smá vídeó
Kv.Kefjet

mynd dagsins: stórhveli við Keflavík , þeir gerast varla stærri en þetta
15.03.2009
Við skelltum okkur smá rúnt í dag í ekki svo miklum hita við lentum í skemmtilegu veðri sól,rigning,haglél,brælu og sléttum sjó og allt þetta gerðist á tæpum tveimur tímum,menn voru mikið í reynsluakstri Gummi kominn með MX stýri og ætlar að gera hluti í sumar þegar brautarkeppnirnar byrja einnig var Ási að setja í RXT-X-inn Stage i frá Riva sem á að gefa 290 hp og 74 mph ,þetta var hinn skemmtilegasti rúntur og eru menn farnir að bíða eftir sumrinu ,við viljum endilega fá sem flesta í lið með okkur í sumar og fjölmenna í ferðir og rúnta.Er búinn að setja inn nokkrar myndir af ferðinni

mynd: Stapadraugurinn Team Kefjet undir Stapa
Kv.Kefjet
13.02.2009
Erum að setja upp grófa dagskrá fyrir sumarið erum komnir með nokkra viðburði , endilega kíkja á Næstu Viðburði og skráið ykkur þið sem viljið,reynum að virkja sem flesta í sumar og fara saman í ferðir frekar en að vera hver í sínu horni ,endilega að nota spjallið og viðra hugmyndir um að gera eitthvað skemmtilegt í sumar
Kv.Kefjet
22.01.2009
Kefjet ætlar að reyna að gera næsta sumar mikið jet-sumar allir sem eiga jetski og ætla sér að nota það næsta sumar ættu að koma sér í samband við okkur til að vera með þegar við förum í okkar ferðir, við erum byrjaðir að plana nokkrar ferðir og vonum að sem flestir mæti með okkur og hafi gaman,allir sem hafa áhuga geta sent okkur línu á kefjet@simnet.is eða skráð sig á póstlistan hér til vinstri(skrá e-mail og ýta á ENTER) sumarið er á leiðinni
Kv.Kefjet
4.1.2009
Nokkrir meðlimir í Kefjet byrjuðu 2009 árið í dag ,við skelltum okkur klassískan suðurnesja túr Kef-Garð-Sand og aftur í Kef það var renniblíða smá þoka í átt að Reykjavík en fínt hér nánast logn og 6°hiti ekki slæmt í janúar það er vonandi að þetta verði svona fram að sumri við settum nokkrar myndir af rúntinum og hér er ein úr Sandgerðishöfn Siggi,Ási,Gummi og Nonni

Fyrsti rúnturinn 2009
Kv.Kefjet
8.11.2008
Hérna eru myndir af næsta hraðskeiðasta skíði í heiminum, þetta er til sýnis á bílasýningunni Sema sem er haldin í Las Vegas á hverju ári þar sem menn koma með eitthvað fríkað sem engum dettur í hug nema þeim og í þetta skiptið koma þeir með Yamaha FX-SHO með þotuhreyfil og á þetta örugglega eitthvað eftir að hreyfast .Það verður gaman að fylgjast með þessu ,það verður líka gaman að vita hvort hann eyði eitthvað minna af bensíni en original :) eða kannski verður bara hægt að keyra hann á litaðri olíu.Kefjet verður með fréttir ef þetta fer á flot
Kv.Kefjet
22.10.2008
Þá er World Finals búið og voru úrslitin nokkuð óvænt en samt ekki ,einsog við töluðum um þá kom Rius (meistari 2005) á sínum Yamaha SHO með mikinn breyttan botn sem allir segja copy/paste af Kawasaki 15F hann var með túrbínu í staðinn fyrir supercharger sem skíðið kemur með original og búinn að setja soldið mikið búst og menn voru að tala um 40 psi (original 6 psi) sem var að gera milli 400 - 500 hp en ekki gefið upp nákvæmlega, leiddi hann 1 moto með yfirburðum þangað til að hosa fór af túrbínu og 40 psi datt niður í smá sog og endaði hann neðarlega ,og í seinna moto leiddi hann líka með nokkrum yfirburðum en þá skemmdi hann stýrisbúnað og endaði í 9.sæti overall ,á meðan keyrði Craig Warner annað sætið og fékk 1.sæti gefins eftir að Yamaha bilaði það verður jú að komast í mark til að vinna og Kawasaki unnu bæði moto á mjög breyttum Kawasaki Ultra með breyttan 15F botn og vortech setup sem gerir um 450 hp og varð heimsmeistari annað árið í röð .Erum ekki með 2 og 3 sæti á hreinu en það var samt turbo RXP-X sem endaði í 2.sæti en hver man eftir öðru sæti :) .hérna eru myndir af tækjunum sem voru að keppa http://www.dgexposure.exposuremanager.com/g/world_finals_2008
Kv.Kefjet
26.09.2008
World Finals 2008
Heimsmeistarakeppni í braut verður haldin þann 4-12 okt. og verður þetta örugglega með þeim betri þar sem allir sem hafa verið meistarar frá 2004 munu vera með í ár og segja menn að Factory Kawasaki hafi aldrei verið hraðari en samt eru menn einsog Dustin Farthing sem var hjá Kawasaki 2005 sé með skíði í smíðum sem er tvin-turbo Kawasaki 15F og búist við allt að 500 hestöflum þar ,Chris MacClugage verður líka með og líklega á Ultra Macc330X þótt að honum hafi ekki gengið vel með Ultran 2007 ,þá kemur Nicolas Rius sem var á Yamaha GP 1300 þegar hann var meisatari 2005 sennilega á Ultra líka en er ekki viss,svo má ekki gleyma Hydrospace en þeir verða örugglega með sína V6 græju og verður gaman að sjá hvort þetta hreifist eitthvað hjá þeim en ekki veit ég hver keyrir fyrir Hydrospace,svo má ekki gleyma öllum þeim sem eru búnir að tjúnna SeaDoo í ræmur sem gætu strítt "stóru" köllunum ef skíðin komast í mark .Svo verður allt það nýjasta á markaðinum í dag sýnt og selt og vonandi að Hydrospace komi með sýnar græjur og sýni þær en öll fyrirtækin koma með nýjustu græjurnar þarna og sína ,einnig eru öll tjúnnfyritækin á staðnum með alla aukahluti .Þetta er eitthvað sem allir sem eru með delluna verða að sjá þetta er F1 í bransanum

Kv.Kefjet
23.09.2008

Jæja þá kom Kawasaki með sína 2009 línu og varð ekkert svo mikil breyting en þó tók kawasaki aftur hestafla-hásætið en nýja Ultran er 260 hestöfl og heitir þar af leiðandi Kawasaki Ultra 260X ,þessi hestöfl koma þannig að þjöppunni er breytt úr 7.8:1 í 8.4:1 og einnig var ventlum breytt og portin stækkuð úr 7,8mm í 8,5mm (inn) og 7,5mm í 8,2mm (út)og ásarnir hækkaðir Kawasaki kemur í litunum svart/lime og svo er hægt að fá hana líka í rauðu en alveg eins að öðru leiti

Einnig er hægt að fá Kawsaki Ultra 260LX með cruiser sæti einsog Yamaha hefur verið þekkt fyrir þessi er alveg einsog 260X að öðru leiti og kemur einungis í þessum lit,Kawasaki verður áfram með Kawasaki STX-15F ,ULtra LX sem er með sömu vél og 15F (160 hp) ,Kawasaki STX sem er ódýrari útgáfa af 15F og síðan verða þeir afram með tvígengis standup SX-R 800.ef fólk vill skoða eð vita meira um Kawasaki 2009 þá er allt að finna hér http://www.kawasaki.com/Products/Watercraft.aspx
Kv.Kefjet
13.09.2008
Þá er komið að því 2009 árgerðirnar eru að koma og SeaDoo er kominn með sína og núna komu breytingarnar, loksins ! en þeir breyta bara GTX og RXT skrokknum og verða með nýja S-laga botn sem gerir keyrslu mun mýkri og þægilegri og með lægri þyngdarpunkt sem er betra uppá jafnvægið,SeaDoo eru einnig búnir að setja fullt af allskonar nýjum græjum svosem GPs hraðamælir sem er tær snilld þar sem ekkert er að marka þessa venjulegu,cruisecontrol,no wake,off throttle steering,skotti,bremsum og bakk assist ekki veit ég hvernig þetta virkar allt saman en mig hlakkar til að sjá þessar græjur og eitthvað mun þetta kosta :)

núna verður hægt að fá allar týpur með 255 hp vélinni en gtx-inn var skilinn útundan 2008, RXP verður áfram með 155,215,255 vélarnar til að velja úr og liturinn í ár er skærgulur eins með RXT ,X-módelin verða að ég held silfurlituð en er ekki 100% þeir sem vilja vita allt um nýju SeaDoo línuna geta kíkt á http://www.jetskiworld.gr/articleview_gallery_eng.php?id=1836 þarna er allt í smáatriðum.
Einnig kom Yamaha með nýtt skíði sem er með sömu vélinni og SHO 1,8 215 hp engar verulegar breytingar en þeir segja að það þurfi 2ja sæta og koma með þessa sleða sem eru 5 Kg léttari en að öðru leiti nánast eins og SHO nema búið að skera eitt sæti og haldfang af afturendanum nú getur hver og einn dæmt fegurðina allt um þetta á http://www.yamaha-motor.com/waverunner/products/lifestylehome/home.aspx

Kv.Kefjet
11.09.2008
Innespace.com

Smáfrétt um ný busltæki í sjónum. Þetta tæki kallast Seabreacher og er eins og höfrungur í útliti og F-22 Raptor græjan skilar 175 Hö. en Supercharged 250 Hö. .. Það er vídeó á síðunni þeirra til að stúdera þetta undratæki nánar www.innespace.com .. Það væri gaman að prófa kvikindið hér í sjónum á Íslandinu,.
Kv. KefJet.
24.07.2008
Hvammsvíkurferðin

myndir úr ferðinni eru komnar
Jetvík bauð okkur með á árlega Hvammsvíkurhátíð Snarfara í Hvalfirði á laugardaginn síðasta þetta var hin skemmtilegasti rúntur þar sem góð reynsla kom á sleðanna sem henta sem best í ferðirnar því að við keyrðum uppí Hvammsvík í haugabrælu og tók okkur einn og hálfan klukkutíma að komast í víkina þar sem lambalærið beið okkar svo var farið í heita pottinn þar sem mesti barningurinn var látinn líða úr ,svo var ekkert annað en að leggja af stað til baka um miðnætti og var sjórinn búinn að róast töluvert og tók það um 45 mín að keyra í Snarfarahöfn ,einsog oft þá voru menn ekki að láta sjá sig en Kefjet og Jetvík bjóða alltaf alla velkomna með í ferðir sú næsta verður sennilega um helgina frá Keflavík og siglt verður um skagann þar sem flottasta hvalaskoðunin er .Sendið okkur línu eða notið spjallið okkar (kefjet@simnet.is)
Kv.Kefjet
17.07.2008
Loksins,Loksins komu sleðarnir sem beðið hefur verið eftir ,Yamaha FX-SHO sleðarnir létu aldeilis bíða eftir sér en loksins komust þeir á klakann og voru eigendurnir mjög spenntir vægt til orða tekið ,en það komu 3 Yamaha FX-SHO , 1 FX-SHO Cruiser , 1 SeaDoo RXT-X og 1 Kawasaki Ultra 250X og eru þetta það allra flottasta og tæknilegasta sem til er í bransanum og að sjálfsögðu er Kefjet fyrstir með það nýjasta einsog allaf
.Þetta eru sleðarnir sem sem henta best fyrir það sjólag sem býðst hér á klakanum og verður það sett í reynslu á laugardaginn ekki er komin endanleg ferðaáætlun en Kefjet og Jetvík ætla að kíkja eitthvað þannig að endilega fylgist með því á Kefjet .Við tókum nokkrar myndir af heimkomunni sem er í myndalbúmi undir Nýju skíðin
Kv.Kefjet

mynd: fyrsta sjósetning og tilkeyrsla hjá Kefjet ,frá vinstri Jón Þór,Ási og Gummi
13.07.2008
ÍRSKUM DÖGUM LOKIÐ..
Þá er Írskum Dögum lokið og var þetta með skemmtilegri móti þó að það hefði vantað nokkra af öflugustu sleðum landsins ,Kefjet setti upp braut sem var hreint útsagt geðveik ,keppendur gátu farið tvær leiðir í brautinni sem gerði þá sem voru hraðir enn hraðari ,eins og við nefndum vantaði nokkra sleða sem við hefðum viljað sjá t.d 2 RXP Stage II og nokkra Stage I sem hefðu gert góða hluti sem vonandi fara að láta sjá sig þegar næsta æfing verður,einnig voru tveir tvígengis sleðar af skaganum sem stóðu sig með prýði ,ekki gátum við verið með tvo flokka einsog við vildum þannig að þeir keyrðu með fjórgengis í þetta sinn vonandi breytist það næst.
En úrslitin úr þessari keppni var þannig að Siggi G á Kawasaki Ultra 250X í Kefjet Racing Team vann bæði moto-in með nokkrum yfirburðum og í öðru Hreggó Kefjet Racing Team Rent-a-boat á hinum sigursæla Kawasaki STX 15F uppsettu brautarskíði. 3 sæti.. Okkur vantar svo nafnið á þeim sem var á svarta XP inu. Bjöggi Kefjet Racing Team stóð sig eins og hetja í fyrsta hring en dettur í seinni og lendir þannig aftarlega.
Við vorum ekki nógu duglegir á ljósmyndum þetta árið en verðum með flott vídeó sem er í vinnslu hjá Paramount .Kefjet vill þakka öllum fyrir hjálpina sem við fengum um helgina ,Akranesbær,Powerade,Magic Oakley .Svo sjáumst við að ári.
Svo verður nóg að gerast í næstu viku þar sem öflugasta jetski sending kemur til landsins (umboð meðtalin) þá koma 4 Yamaha FX-SHO,1 SeaDoo RXT-X og 1 Kawasaki Ultra 250X. 1 Yamaha og Kawasaki fara í Jetvík en hinir í Kefjet , eru menn vægast sagt spenntir og eru farnir að tala um ferðir í kringum jörðina um næstu helgi svo mikil er spennan ,Kefjet og Jetvík ætla að reyna að fara um helgina og allir eru velkomnir með að sjálfsögðu bara nota spjallið og senda pósta,við setjum inn myndir þegar græjurnar mæta í hús og jafnvel opið hús ef fólk vill skoða 2008 línuna einsog hún leggur sig
Kv.Kefjet
Írskir Dagar! ,Írskir Dagar!

21.05.2008 mynd:Jón V.B Siggi G Kawasaki Ultra 250X Team Kefjet
Kefjet og Jetvík fóru á sunnudaginn á sameiginlega brautaræfingu uppá Hafravatn í fínu veðri,þarna voru mættir nokkrir öflugir sleðar og var tekið vel á því,við settum niður stóra og skemmtilega braut en einstaklega þægilegt er að koma niður braut og sleðum uppá Hafravatni.Þetta er eitthvað sem við eigum eftir að gera mikið af í sumar sérstaklega ef R.Sigmundsson ætlar að vera með brautarkeppnir í sumar ,við viljum endilega fá alla með sem hafa áhuga á að prufa.Jón Viðar (Kefjet) og Robbi (Jetvík) tóku fullt af myndum sem eru komnar inn svo er vídeó á leiðinni
myndir komnar frá Bílar&Sport sýningu
Kv.Kefjet
05.05.2008
Bílar&Sport
Þá er enn einni frábærri sýningu lokið hjá Bílar&Sport ,þessi sýning var sú albesta hingað til enda í risahúsnæði 10,000fmt. .Kefjet og Jetvík voru að sjálfsögðu á staðnum og nýttum krafta okkur saman og gerðum langflottasta básinn (að okkar mati ) en helgin gekk vel mikið af fólki og ennþá meira af græjum ,þessi sýning var betri en síðustu ár því að núna var meira af allskona græjum til að nota í allskonar sportum svosem myndavélar,talstöðvar og fleira ,okkur fannst þetta vera mögnuð sýning og þökkum Bílar&Sport fyrir að leyfa okkur að vera með í þessari sýningu og þökkum líka Jetvík fyrir gott samstarf ,Kefjet og Jetvík eru stórhuga þetta sumarið allir sem vilja vera með ættu að drífa sig að koma sér í samband við okkur.
myndirnar eru á leiðinni
Kv.Kefjet
29.04.2008







